Áreiðanleikakannanir
Framkvæmd áreiðanleikakönnunar er þjónusta sem Debet veitir viðskiptavinum sínum. Gerð áreiðanleikakönnunar felst í því að staðreyna stöðu fyrirtækja, rekstur og önnur atriði til þess að varpa skýru ljósi á raunverulega stöðu þeirra.
Sért þú að hugleiða kaup á fyrirtæki, samruna eða gerð stærri samninga, þá er það nær ófrávíkjanleg regla að gerð sé áreiðanleikakönnun. Áreiðanleikakönnunum má skipta upp í nokkra þætti eins og fjárhagslega, skattalega, lagalega og tæknilega(IT), svo eitthvað sé nefnt.

Dæmi
Áreiðanleikakannanir geta leitt í ljós bæði jákvæðar og neikvæðir niðurstöður. Sem dæmi um það sem getur komið í ljós má nefna eftirfarandi:
Oft getur verið um töluverða einkaneyslu að ræða í því fyrirtæki sem er til skoðunar.
Tæknimálum fyrirtækisins getur verið verulega ábótavant.
Lagalegt umhverfi getur verið með þeim hætti að hömlur eru settar á viðskipti fyrirtækisins eða samruna þess við önnur félög.
Kannað er sérstaklega hvort lögum um rekstur einkahlutafélaga / hlutafélaga hafi ekki verið fylgt í rekstri.
Kannað er sérstaklega hvort myndast hafi skattalegar skuldbindingar í rekstri fyrirtækisins og hvort óafgreiddar séu fyrirspurnir eða kærur gagnvart yfirvöldum.
