Stuðningur og þjálfun
Í upphafi allra samninga sem við gerum við okkar viðskiptavini metum við með þeim hverjar þarfir þeirra eru og hvernig sé best að verða við þeim.
Við veitum viðskiptavinum okkar stuðning í gegnum síma og tölvupóst en síðast en ekki síst með ráðgjöf og þjálfun á þeirra vinnustað.
Markviss stuðningur og þjálfun er það sem stuðlar að farsælu viðskiptasambandi við okkar viðskiptamenn. Þessi þjónusta okkar hefur fengið afar góðar viðtökur. Við hvetjum þig til að hafa samband og kynna þér hvernig við getum aðstoðað þig.
Unnið hjá þér!
Í sumum tilfellum getur það hentað viðskipavinum betur að unnið sé í þeirra starfsstöð.
Við lítum á það sem sjálfsagða þjónustu að starfa þar sem það hentar okkar viðskiptavinum best.
Með þessu fyrirkomulagi spara viðskiptavinir okkar töluverðan kostnað, ekki þarf að fastráða starfskraft, heldur veitum við sérfræðiþjónustu byggða á þörfum viðskiptavina okkar hverju sinni.
Þjónustuver
Þjónustuver Debet er opið alla virka daga á milli 9:00 og 18:00 þar sem hægt er að ná í okkur í síma 517 1035.
Einnig má senda okkur tölvupóst á netfangið debet@debet.is - við svörum öllum fyrirspurnum innan 24 tíma frá því að þær berast okkur.