Hvað er útvistun?
Það færist sífellt í vöxt að fyrirtæki sjái sér hag í því að fela utanaðkomandi sérfræðingum umsjón með tilteknum þáttum starfseminnar. Debet sérhæfir sig í útvistun verkferla á fjármálasviði.
Breytt tækniumhverfi auðveldar fjarvinnslu til muna ásamt bættum gæðum viðskiptakerfa veldur því að stjórnendur sjá mikið hagræði í því að útvista þessum þætti starfsemi sinnar.
Hvers vegna?
Með því að fela sérfræðingum umsjón með hefðbundnum störfum "stoðdeilda" gefst stjórnendum meira tóm til að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni, þar sem raunveruleg verðmætasköpun fyrirtækisins á sér stað. Reynslan hefur sýnt fram á kostnaðarlækkun í kjölfar hagræðingar um allt að 40%. Meira
Hvað gerum við?
Við sjáum til þess að öll þín mál séu í höndum sérfræðinga. Einhverjir hika fyrst við að fela utanaðkomandi aðilum umsjón með svo viðkvæmum þáttum sem bókhaldi og launavinnslu fyrirtækja.
Áhættan er þó hverfandi lítil þar sem nútíma tölvu- samskipta- og upplýsingakerfi gera það að verkum að allir eru upplýstir um stöðu mála í rauntimaumhverfi.